Úti

Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal

ÍþróttirSkemmtunHeilsa

ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal. Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti. Email: kristin.lyngdal@gmail.com eða buibjarmar@gmail.com Instagram: @utihladvarp

Veturinn er loksins kominn og cancel á að yfirgefa fjölskyldur

Í þættinum erum við tvö aftur, K og B. Við tökum svona það helsta frá síðustu vikum og hendum okkur svo í smá spjall um útivist að vetrarlagi. Búi er að fara henda í styrktarnámskeið í Jan stay tuned. Og vetrardagskráin komin hjá Úti hreyfingunni.

Við erum brjáluð og fleira

Búi og Kristín tókum þennan saman. Allskonar viðfangsefni í dag, Taco Bell hlaupið, Andrea okkar Kolbeins (#takk), ástand í borginni, rammaáætlun og fleira.

Kilimanjaro fyrir þrítugt - Steinunn Helgadóttir

Steinunn er ung og metnaðarfull útivistarkona með Bs í jarðfræði og Ms í umhverfisbreytingum á Norðurslóðum. Hún starfar sem náttúruvásérfræðingur á Veðurstofunni, elskar Snæfellsjökulsþjóðgarð, á góða kúkasögu af Kilimanjaro og stefnir á að heimsækja Machu Picchu á næsta ári. Við fengum að kynnast þessari duglegu konu sem væri til í að vera utandyra alla daga, svona eins og við. .

Úti í borginni og bíllaus lífstíll - Brynhildur Bolladóttir

Brynhildur Bolladóttir nýkjörinn formaður samtaka um bíllausan lífstíl kíkti í Úti. Já það er líka hægt að vera Úti í borginni. Við förum yfir fréttir af sviði útivistar og rennum svo yfir í virkar samgöngur bæði í borg og úti á landi.

Klifursenan og snarbratta Þuríður með Jónasi G. Sig. (Jonna)

Í þættinum fáum við til okkar Jónas G. Sigurðsson klifrara og útivistargarp. Við vörum yfir helstu fréttir af útivist svona í byrjun hausts og hendum okkur svo í mál málana; hver var fyrstur uppá Þuríði, klettur sem stendur úr Óshyrnu sunnan við Bolungarvík. En Jónas og félagi hans Andri fóru uppá hana í byrjun september en voru þeir fyrstir, það kemur í það minnsta í ljós í þessum þætti. Ásamt mörgu um klifursenuna á Íslandi. Hægt er að fá góða vettlinga í Peloton, eins og fram kemur í þættinum. Gott að kíkja þangað. Eins má fá flenni fínan vatna- og sjóúbúnað hjá Villimanninum um að gera að græja sig upp þar.

Róbert Marshall og meira úti

Um þessar mundir sýnir RÚV þriðju seríuna af Úti, þáttarseríu Róberts Marshall og Brynhildar Ólafsdóttur. Í þáttunum fá áhorfendur að fylgja hópum þeirra hjóna í gegnum hin ýmsu útivistarævintýri. Okkur fannst því tilvalið að fá Róbert til okkar í spjall um þættina, ævintýrin, útivistina og lýðheilsumál þjóðarinnar. Við mælum eindregið með að kíkja á þættina Úti sem finna má í Sarpinum. Einnig mælum við með að kynna sér haustdagskrá Útihreyfingarinnar.Við þökkum Peloton fyrir gott samstarf og hvetjum ykkur til að kíkja á þangað, þessa dagana er 30% afsláttur af fatnaði og því hægt að gera kjarakaup. Fyrir þau sem ætla skella sér í sjóinn er síðan um að gera að kíkja á Villimanninn þar sem er allskyns sjó- og vatnadót til sölu.

Reykjavíkurmaraþon og haustið - Kristín og Búi

Í þessum þætti þá förum við yfir eitt og annað, undirbúning fyrir Reykjavíkurmaraþon og líka skort á undirbúningi. Eins förum við aðeins yfir sumarið okkar og rútínuna sem haustið ber með sér. Það er af nægu að taka í dagskrá haustsins, Kristín verður með Fjallakonu námskeið sem byrjar í haust (tilvalið fyrir konur sem vilja ganga á fjöll og eins þær sem stefna á að verða fjallkona næsta júní) og Búi verður með styrktarþjálfun fyrir hlaupara og hjólara uppí Mjölni (meira um það síðar). Eins ætlum við að hlaupa til styrktar Reykjadal og hvetjum fólk eindregið til þess að heita á okkur eða önnur flott málefni. Eins má sækja sér ævintýrabúnað í versluninni Peloton sem hentar vil til allskyns fjallabrölts.

Birta & Emil - Allir í skátana!

Birta Hall og Emil Kjartan Valdimarsson, skátar og verðandi menntaskólanemar komu og spjölluðu um nýliðið Landsmót skáta og sjálfboðaliðastarf sitt í skátamiðstöð í Svíþjóð fyrr í sumar.Landsmót skáta var haldið á Akureyri dagana 20.-26. júlí. Þar komu saman skátar alls staðar að úr heiminum, skelltu upp tjaldbúðum og sóttu veglega og fjölbreytta dagskrá. Birta og Emil komu reynslunni ríkari heim og þau hvetja alla til að koma í skátana. Úti er í boði Peloton ævintýra-verslunar, um að gera að sækja sér útbúnað þangað. Um að gera að kynna sér dagskránna hjá Úti hreyfingunni fyrir þau sem vilja keyra á útivist næsta haust. Eins erum við með fréttabréf fyrir áhugasöm. Þar koma tilkynningar um nýja þætti og einhverjar hugrenningar dagskrárstjóra svona af og til.

María Ögn, leiðsagnarlífið og Rift

Fimmti þáttur, gjörðu svo vel. Förum aðeins yfir vegferðina hjá Maríu úr stífu keppnisprógrami og yfir í hjólaleiðsögn, rútuprófið og fleira stuð. Tökum aðeins stöðuna á endurstillingu á markmiðum og forsendum gagnvart útivist og hreyfingu og allskonar eins og smá Rift yfirferð séð frá hliðarlínunni. Þessi þáttur er í boði Peloton þar sem er hægt að fá allskonar snilld í ævintýrin. Eins má endilega kynna sér snildina sem er í boði hjá Úti ef einhver áhugi er á að gíra sig í útið.

Þroskaferlar á fjöllum og þermistigið

Í þættinum förum við yfir ævintýri síðustu daga hjá Kristínu og Búa. Kristín endaði bæði í á og á vegg í hjólaferð og er farin að uppgötva sjarma tjaldlífsins. Búi átti hins vegar eftirminnilega stund uppi á heiði – þar sem náttúran var bæði yfirþyrmandi og hans innri náttúra minnti á sig (hann kúkaði uppá heiði). Þátturinn er í boði Peloton hvar fást frábærar útivistarvörur gegn vægu gjaldi. Bestu þakkir fá BL fyrir að lána okkur Dacia Bigster sem kom að mjög góðum notum við andlega krefjandi aðstæður. Eins viljum við benda fólki á Villimanninn, verslun með vörur fyrir sjó- og vatnasport.

Þér gæti líka líkað...