Róbert Marshall og meira úti
Um þessar mundir sýnir RÚV þriðju seríuna af Úti, þáttarseríu Róberts Marshall og Brynhildar Ólafsdóttur. Í þáttunum fá áhorfendur að fylgja hópum þeirra hjóna í gegnum hin ýmsu útivistarævintýri. Okkur fannst því tilvalið að fá Róbert til okkar í spjall um þættina, ævintýrin, útivistina og lýðheilsumál þjóðarinnar. Við mælum eindregið með að kíkja á þættina Úti sem finna má í Sarpinum. Einnig mælum við með að kynna sér haustdagskrá Útihreyfingarinnar.Við þökkum Peloton fyrir gott samstarf og hvetjum ykkur til að kíkja á þangað, þessa dagana er 30% afsláttur af fatnaði og því hægt að gera kjarakaup.
Fyrir þau sem ætla skella sér í sjóinn er síðan um að gera að kíkja á Villimanninn þar sem er allskyns sjó- og vatnadót til sölu.
Fleiri þættir af Úti
- Veturinn er loksins kominn og cancel á að yfirgefa fjölskyldur18. nóvember 2026
- Við erum brjáluð og fleira5. nóvember 2026
- Kilimanjaro fyrir þrítugt - Steinunn Helgadóttir23. október 2026
- Úti í borginni og bíllaus lífstíll - Brynhildur Bolladóttir7. október 2026
- Klifursenan og snarbratta Þuríður með Jónasi G. Sig. (Jonna)23. september 2026
- Reykjavíkurmaraþon og haustið - Kristín og Búi19. ágúst 2026
