Pétur Ben, Sanskrít, Inga Lísa Middleton

· Arts

Í handprentuðum bláleitum ljósmyndum teflir Inga Lísa Middleton saman stærstu og smæstu lífverum hafsins, hvölum og svifþörungum, og varpar ljósi á samspil þeirra. Sýninginí Loftskeytastöðinni kallast Hafið á öld mannsins, og hefur að geyma verk sem nú þegar hafa ferðast víða um heim. Víðsjá hitti Ingu Lísu við verkin og spurði út í vinnuferlið og innblásturinn, en við sögu koma þýskur efnafræðingur og breskir fagurkerar frá viktoríutímanum.
Pétur Ben, tónlistarmaður, lítur við í hljóðstofu og ræðir lífið og listina, plötuna Painted Blue og komandi tónleika í Hljómahöllinni.
Haukur Þorgeirsson málfræðingur og pistlahöfundur heldur áfram að ræða frænkur íslenskunnar. Að þessu sinni heyrum við af tengslum íslensku og sanskrít og hinum heilaga drykk sem ránfuglinn færði guðunum.

Víðsjá

Úr hlaðvarpinu

Víðsjá

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Víðsjá