Vaka og Varkár
Ein af fyrstu bókunum til að flæða inn fyrir dyr ríkisútvarpsins í komandi jólabókaflóði er skáldsagan Varkár eftir rit- og danshöfundinn Margréti Bjarnadóttur. Verkið fjallar um þrána eftir því að eignast barn og þá miklu óvissu og ókyrrð sem fylgir því að missa fóstur. Margrét mun heimsækja okkur í hljóðstofu í síðari hluta þáttar og segja frá bókinni.
Fyrst förum við uppeftir í Kópavog þar sem Þjóðlistahátíðin Vaka stendur yfir. Á morgun heldur þjóðlagahópurinn Umbra tónleika ásamt þremur norskum tónlistaramönnum, Ingrid Lingaas Fossen, Vegar Vårdal og Vegard Hansen. Víðsjá hitti nokkra úr því fríða föruneyti og fékk innsýn í heim norska hljóðfærisins langeleik.
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026