Valgerður Briem, 1.h.v og upphitun fyrir Heimsljós
Víðsjá hefst að sinni í Gerðarsafni þar sem yfirlitssýning á verkum Valgerðar Briem opnar annað kvöld. Cecilie Gaihede sýningarstjóri og Brynja Sveinsdóttir safnstjóri sögðu frá sýningunni og rannsókninni sem liggur að baki.
Vala Sigþrúðardóttir Jónsdóttir kíkti á sýningu Joe Keys og Svövu Björnsdóttur, Glundroða, í heimagalleríinu 1.h.v. að Lönguhlíð 19 og rýnir í sýninguna í myndlistarpistli sínum.
Þá leggur Halldór Guðmundsson rithöfundur línurnar fyrir bókaklúbbinn Aldrei las ég Laxness sem heldur áfram á miðvikudag. Halldór segir frá högum Halldórs á 4. áratug síðustu aldar þegar hann er að skrifa sín stærstu verk og forvitnast er um aðdraganda skáldsögunnar Heimsljóss sem verður á dagskrá bókaklúbbsins í Víðsjá á morgun.
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026