Led Zeppelin, íslenska og gríska.
Led Zeppelin kom hingað til lands sumarið 1970 sem eins konar varalausn á Listahátíð eftir að annar listamaður, Donovan, reyndist of kostnaðarsamur fyrir tónleikahaldara - í þætti dagsins hleypum við nýjum dagskrárgerðarmanni að hljóðnemanum; Diljá Valsdóttir tekur við stjórninni og mun reyna að setja okkur inn í hugarheim fólksins sem sótti tónleika Led Zeppelin í Laugardalshöll á sínum tíma.
Haukur Þorgeirsson segir frá tengslum íslensku og grísku og leiðir okkur svo inn í Trójustríðið en þegar allt virtist glatað fengu íbúar Tróju liðsauka frá Amasónum sem blésu tróverskum konum baráttuanda í brjóst.
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026