Kichin, Njáluhöfundur og Himna
Í Hvelfingu Norræna hússins stendur yfir sýningin Himna; Goðsagnir & skáldskapur úr jörðu. Sýningin er samsýning átta listamanna sem koma víðsvegar að en verk þeirra skoða endurnýjun jarðvegs sem grundvallarferli sem gerir jörðina byggilega og lífi kleift að kvikna, dafna og endurnýja sig. Í þætti dagsins gerum við okkur ferð í Norræan húsið og tökum sýningarstjórann Thomas Pausz tali um Himnu.
Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor, segir okkur frá skáldunum sem sömdu Íslendingasögurnar og endar á Njáls sögu. Var höfundurinn einhver frændi Snorra Sturlusonar - eða kannski frænka hans?
Gallerí Kichin var stofnað af þeim Skúla Thayer og Silju Rún Högnadóttur en upphafi miðaðist galleríið við eina óræða mublu sem þau fundu í Góða hirðinum. Mublan fékk heimili í vinnustofu þeirra í Listaháskólanum og með tímanum umbreyttist hún í sýningarrými. Í fyrra fór Kichin svo í samstarf við listahátíð í Reykjavík og úr urðu sex sýningar sem hófu göngu sína við upphaf listahátiðar og opna með viku millibili fram í júlí. Í þættinum lítum við inn í Kling og Bang og fáum að heyra af verkefninu.
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026