Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður
Endurfluttur þáttur frá 2024:
Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er fædd í Reykjavík árið 1960 en bjó um árabil í Frakklandi, Ítaliu og Bandaríkjunum. Hún stundaði nám í fatahönnun í París og við Parson School of Design í New York. Eftir útskrift starfaði hún hjá erlendum tískuhúsum á borð við Calvin Klein, Ralph Lauren, La Perla og Gucci, en ákvað árið 2000 að flytja heim til Íslands og stofna sitt eigið merki: Steinunn. Síðan þá hefur Steinunn einnig rekið verslun í verbúðunum á Granda, þar sem hún framleiðir í takt við eftirspurn vel sniðin föt úr hágæðaefnum. Hún segist lifa í núinu þökk sé fjölfötluðum syni sem hefur kennt henni meira um lífið en allt annað, hún klæðist ull frá toppi til táar alla daga, allan ársins hring og helst bara svörtu.
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026