Brothætt, Nína Sæmundsson og tónlistarpistill Tuma Árnasonar

· Arts

Við hefjum þáttinn á því að heimsækja sviðslistakonuna Steinunni Önnu Knútsdóttur, sem stendur þessa dagana að þátttökuverkefni um hið brothætta og ófullkomna, og safnar bæði brotnu leirtaui og sögum í aðstöðu sinni á Dansverkstæðinu við Hjarðarhaga. Tumi Árnason flytur svo sinn hálfsmánaðarlega pistil um miðbik þáttar og fjallar meðal annars um stafrænan draugagang píanóleikara í parís og rými innan í rými í Hafnarborg.
Upplýsingar óskast um listakonuna Nínu Sæmundsson. Áttu verk eftir Nínu Sæmundsson, eða upplýsingar um líf hennar og feril? Svo hljóðar auglýsing sem Listasafn Reykjanesbæjar setti nýverið í loftið, en fyrirhuguð er sýning á verkum Nínu í safninu í haust. Sýningarstjórar eru þær Ynda Eldborg og Viktoría Guðnadóttir, en samkvæmt þeim er enn margt á huldu þegar kemur að lífi og list Nínu.

Víðsjá

Úr hlaðvarpinu

Víðsjá

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Víðsjá