Una Björk Kjerúlf handhafi Ljóðstafs Jóns úr vör, fyrsta útvarpssendingin, Tumi Árnason/pistill

· Arts

Una Björk Kjerúlf hlaut í gær Ljóðstaf Jóns úr Vör, en verðlaunin hafa verið veitt frá ár­inu 2001 í minn­ingu skálds­ins Jóns úr Vör. Ljóð Unu Bjarkar kallast Framlag mitt í minningabanka nærri útdauðra ljóðaen í rökstuðningi dómnefndar segir að það sé listilega lipurt og leikandi en efni þess sé nokkuð kvíðablandið þegar betur er að gáð. Við ræðum við Unu Björk Kjerúlf í þætti dagsins.
Einnig minnumst við fyrstu útvarpssendingarinnar á Íslandi sem fór fram í Fríkirkjunni í Hafnarfirði fyrir 100 árum síðan. Þetta var fyrir daga ríkisútvarpsins en Ottó B. Arnar símfræðingur hafði fengið leyfi til að stofna og starfrækja útvarpsfélag og stóð að þessari útsendingu. Til að minnast þessa stórviðburðar höfðu þeir Sigurður Harðarson, rafeindavirki og formaður Hollvina um sögu útvarps á Íslandi og Birgir Arnar, sonur Ottós B Arnar, frumkvæði að því að útvarpsguðsþjónustu frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði verður útvarpað beint hér á Rás 1 á 100 ára afmælinu næstkomandi sunnudag. Þeir verða gestir okkar í dag.
Einnig flytur Tumi Árnason pistil þar sem meðal annars ný plata Sölva Kolbeinssonar kemur við sögu.

Víðsjá

Úr hlaðvarpinu

Víðsjá

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Víðsjá