Skógarhögg Thomas Berhard, karókílög Alter-Eyglóar á Ölveri, Ungfrú Ísland/rýni
Við lítum inn á eina elstu krá bæjarins, Ölver sportbar, en þar stendur tónskáldið og sviðslistakonan Eygló Höskuldsdóttir Viborg fyrir viðburðum í vikunni í nafni hliðarsjálfsins Alter-Eyglóar. Í tilraun til þess að snúa á alræði streymisveitanna og finna leið til að lifa á tónlistinni ákvað Eygló, sem stundaði framhaldsnám í tónsmíðum í Berklee og NYU, að skella í nokkur poppkennd karókílög. Á Ölveri gefst gestum viðburðarins kostur á að spreyta sig á þessum glænýju karókílögum og fylgja Alter Eygló inn í hugleiðingar um neyslu á tónlist og vinnuna sem liggur að baki.
Leikverkið Ungfrú Ísland var frumsýnt í Borgarleikhúsinu þann 17.janúar síðastliðinn. Verkið er byggt á samnefndri skáldsögu Auðar Övu Ólafsdóttur en það eru þau Gréta Kristín Ómarsdóttir og Bjarni Jónsson sem unnu leikgerðina, og Gréta Kristín leikstýrir jafnframt verkinu. Við heyrum hvað einum af leikhúsrýnum þáttarins fannst um þessa leikgerð, en að þessu sinni er það Katla Ársælsdóttir sem rýnir.
En við byrjum þáttinn á því að kynna okkur splunkunýja þýðingu á verki sem kom fyrst út í Austurríki árið 1984. Skógarhögg-geðshræring, eftir Thomas Bernhard, olli mikilli ólgu í menningarlífi Vínarborgar þegar hún kom út og var fjarlægð úr bókabúðum vegna átaka um ærumeiðingar. Bókina þýddi Hjálmar Sveinsson, sem segir bókina eiga einstaklega vel við okkar tíma. Tíma sem einkennist af leit okkar, hér í velmegunarþjóðfélögunum, að sannleika, með ýmsum leiðum, því það sé einhver kjarni sem við söknum úr lífinu. Þrá í sannleika, en einnig fegurð, sé að hans mati kjarni bókarinnar.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026