Mörsugur, Augljós í Neskirkju, Köttur á heitu blikkþaki / rýni
Við hefjum þáttinn á því að fara í kirkju. Augljós kallast sýning sem opnaði þann 8.desember í Neskirkju og stendur yfir fram til 20.janúar. Þar sýnir Þórdís Erla Zoega ljósaverk sem sækja innblástur í kirkjuglugga og vinnur með sjónrænar skynvillur sem hvetja áhorfandann til að líta inn á við. Við kynnum okkur einnig nýtt verk, Mörsugur, óperu fyrir rödd með rafhljóðum og myndbandsverki, byggða á ljóðsögu eftir Ragnheiði Erlu Björnsdóttur. Mörsugur varð til í samsköpunarferli Ásbjargar Jónsdóttur tónskálds, Heiðu Árnadóttur söngkonu og Ragnheiðar Erlu Björnsdóttur ljóðskálds og tónskálds og nú fyrir helgi kom út bókverk með ljóðsögunni, ásamt grafískum útfærslum og stillum úr myndverki sem Ásdís Birna Gylfadóttir vann við Mörsug. Þær Heiða og Ásbjörg koma til okkar í hljóðstofu og segja okkur nánar af verkefninu.
Trausti Ólafsson rýnir í Kött á heitu blikkþaki sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu þann 28.desember.
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026