Melkorka Sigríður Magnúsdóttir / svipmynd
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, danshöfundur, nýsköpunarfræðingur og tónlistarkona var bara fimm ára þegar hún fór að sjá Þrjár systur Tchekhovs og fannst það alveg jafn skemmtilegt og að sjá Skógarlíf. Hún varð snemma heilluð af leikhúsinu svo það var í raun rökrétt skref að fara í dansnám þó röð tilviljana hafi líka átt þar hlut að máli. Sautján ára gömul flutti hún til Amsterdam til að læra danssmíði og síðar til Brussel í framhaldsnám í samtímadansi við P.A.R.T.S skólann. Í verkum sínum hefur Melkorka gjarnan kannað samband og mörk tónlistar og danslistar og oftar en ekki unnið í samstarfi við aðra listamenn. Hún myndar ásamt Árna Rúnari Hlöðverssyni dúóið Milkywhale en hann kemur einmitt að sýningunni Hverfa sem Melkorka er höfundur að og frumsýnir í samstarfi við Íslenska dansflokkinn um næstu helgi. Melkorka er gestur okkar í svipmynd dagsins.
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026