Púls, félagslegt húsnæði og nýr leikhússkóli
Um liðna helgi opnuðu tvær sýningar í Listval við Hverfisgötu, á bak við þær eru listamennirnir Helga Páley Friðþjófsdóttir og Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttur. Sýning Hólmfríðar Sunnu kallast Púls og sýnir málverk þar sem efnið sjálft ræður för á ferð um hringrás náttúrunnar; himinn, jörð, plöntur, hold og kynjaverur og allskyns óvænt form birtast þar í mjúkum tónum og lífrænum formum. Hólmfríður er með bakgrunn í heimspeki og segir þau fræði vera samofin hennar myndlistarpælingum. Við lítum inn í Listval í þætti dagsins.
Hildigunnur Sverrisdóttir, arkitekt, verður einnig með okkur í dag og að þessu sinni fjallar hún um hnignun félagslegs húsnæðis á Íslandi.
Og við hugum líka að menntun í þættinum. Þjóðleikhúsið hefur sett á laggirnar nýjan leikhússkóla fyrir fólk á aldrinum 18-22 ára. Skólinn tekur til starfa í haust og inntökuferli hefst nú í maí. Við ræðum við skólastjórann og aðalkennara námsins, Völu Fannell, í þættinum.
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026