Svipmynd: Jón Kristinsson, arkitekt og uppfinningamaður
Arkitektúr er ekki bara að teikna hús, segir Jón Kristinsson arkitekt, heldur svo margt annað. Arkitektúr er að vita hvar sólin kemur upp, hvernig þú athafnar þig við eldavélina, hvernig halda megi húsi hreinu og þurru, hvernig spara megi orku og skilja eitthvað eftir fyrir komandi kynslóðir. Því þú teiknar aldrei hús fyrir sjálfan þig, heldur alltaf fyrir komandi kynslóðir. Í verkum Jóns er formið ekki upphafið, heldur alltaf afleiðing af sjálfbærri hugsun.
Jón er fæddur á Stýrimannastíg í Reykjavík árið 1936. Eftir stúdentspróf fluttist hann til Hollands þar sem hann nam arkitektúr við Tækniháskólann í Delft. Í Hollandi er Jón landsþekktur maður og hans þekktasta hús, Villa Flora frá 2012, er kallað vistvænasta hús Hollands og þó víðar væri leitað. Jón hefur verið kallaður faðir sjálfbærs arkitektúrs enda hefur hann alla tíð hannað á framúrstefnulegan hátt, með umhverfisvitund og orkusparnað að leiðarljósi.
Umsjón: Halla Harðardóttir
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026