Aldrei las ég Laxness / Heimsljós

· Arts

Í Víðsjá dagsins höldum við áfram með bókaklúbbinn okkar; Aldrei las ég Laxness. Skáldsaga dagsins er stórvirkið Heimsljós sem kom út í fjórum bindum árin 1937-1940. Heimsljós fjallar um ævi Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, skálds og hreppsómaga, og fylgir vegferð hans á þjáningarbraut lífsins. Nafnið Heimsljós er sótt í síðustu ljóðlínur kvæðisins Söknuður eftir Jónas Hallgrímsson: Hnigið er heimsljós,/himinstjörnur tindra./Eina þreyi eg þig.

Gestur Aldrei las ég Laxness er Bára Gísladóttir, tónskáld sem búsett er í Kaupinhavn. Við tengjumst landa á milli með hjálp nútímatækni og vísinda og ræðum verkið í bærilega góðu hljóði. Hins vegar verður aðeins fjallað um helming verksins í þættinum. Viðsjá mun því ljúka yfirferð á Heimsljósi næsta miðvikudag.

Þátturinn var unninn í samstarfi við Forlagið
Grafík: Silvía Sif Ólafsdóttir

Víðsjá

Úr hlaðvarpinu

Víðsjá

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Víðsjá