Skjálfti Finnboga Péturssonar, Flamenco feðgar og Hans og Gréta/rýni
Einkasýning Finnboga Péturssonar á haustsýningu Listasafns Árnesinga heitir Skjálfti, og samanstendur af tveimur innsetningum; annars vegar risastórum spegli, sem er ýmsum eiginleikum gæddur, og svo eldrauðu duftkeri, sem markar syðri enda línu sem sker landið skáhallt, eins og flekamótin undir landinu. Vísanirnar í jarðfræði eru fleiri, og ekki óvanalegar fyrir verk Finnboga, en við bætist andlegri vídd þar sem raunheimar og handanheimar skarast og renna saman. Finnbogi segir okkur nánar af tilurð verksins í Víðsjá dagsins. Við lítum líka inn á tónlistaræfingu feðganna Símons H. Ívarssonar og Ívars Símonarsonar, sem flytja flamenco gítartónlist í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar annað kvöld og heyrum rýni Trausta Ólafssonar í uppsetningu Kammeróperunnar á ævintýraóperunni Hans og Grétu í Tjarnarbíói,
Fleiri þættir af Víðsjá
- Nína okkar kærasta Nína, Eyríki, Haukur/pistill6. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Svipmynd af tónlistarmanni / Skúli Sverrisson5. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Sex Ed, Meðan borgin blánar og Ea fantasía1. október 2026
- Víðsjá þrítug30. september 2026