Hamraborg Festival, Dolly Parton og frændtungur íslenskunnar

· Arts

Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs sem hefst á föstudag og er byggð upp í nánu samstarfi við nærsamfélagið. Við bregðum okkur í Náttúrusafn Kópavogs til að hitta þar tvö tónskáld, sem bæði eru meðal listamanna á Hamraborg Festival, þau Þórð Hallgrímsson og Ásu Önnu Ólafsdóttur, eða Asalaus.
Haukur Þorgeirsson, rannsóknarprófessor á Árnastofnun, hefur nýja pistlaröð í dag um íslenskuna okkar og um fornar og nýjar frændtungur hennar. Hann fer með okkur aftur á bronsöld og við heyrum um málin sem voru töluð í Tyrklandi þegar Trójuborg stóð með blóma. Í síðari hluta þáttar minnumst við svo Dolly Parton og hlýðum á nokkur lög eftir þá mögnuðu konu.

Víðsjá

Úr hlaðvarpinu

Víðsjá

RÚV

Allir þættir

Fleiri þættir af Víðsjá