X26 - Vestmannaeyjar: Samgöngur og vatnsöryggi stóru hitamálin
Samgöngumál, vatnsöryggi, skipulag og þjónusta við íbúa voru meðal helstu umræðuefna á borgarafundi Morgunblaðsins og mbl.is sem haldinn var í Vestmannaeyjum í gærkvöld í aðdraganda komandi sveitarstjórnarkosninga.
Þar tókust á Sæunn Magnúsdóttir fyrir Miðflokkinn, Eyþór Harðarson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Arndís María Kjartansdóttir fyrir Eyjalistann og kynntu áherslur sínar í líflegum umræðum fyrir fullum sal af fólki.
