Hann breytti árfarveginum og stefnu straumsins
Forsætisráðherra, borgarstjóri, seðlabankastjóri, formaður Sjálfstæðisflokksins, rithöfundur, leikritaskáld, listamaður, útvarpsmaður, blaðamaður og ritstjóri. Hægt er að nota öll þessi starfsheiti til að lýsa Davíð Oddssyni sem lést á heimili sínu sunnudaginn 1. mars aðeins 78 ára að aldri.
Með Davíð er genginn einhver áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldisins – stjórnmálamaður sem hafði ekki aðeins skýra sýn á samfélagið og skilning á þjóðarsálinni, heldur hafði hann djúpstæða sannfæringu fyrir mikilvægi frelsis einstaklingsins.
Þegar Davíð steig fyrst inn á svið stjórnmálanna var flestum ljóst að þar færi ungur maður með skýra pólitíska sannfæringu sem væri óhræddur við að takast á við pólitíska andstæðinga jafnt og glíma við samherja. Húmorinn var vopn sem hann kunni að fara betur með en flestir aðrir.
Davíð var ekki stjórnmálamaður sem flaut með straumnum – hann breytti árfarveginum og stefnu straumsins. Davíð treysti einstaklingum og var tortrygginn gagnvart miðstýringu og opinberu valdi.
Í ítarlegu viðtali við Morgunblaðið í október 2005 í tilefni af ákvörðun hans að yfirgefa svið stjórnmálanna sagði Davíð að það sem væri efst í huga væru þær breytingar sem hafa orðið á andrúmi og umhverfi í þjóðfélaginu:
„Vald stjórnmálamanna hefur verið takmarkað mjög verulega og þeir geta nú einbeitt sér að sínum verkahring; að setja þjóðfélaginu leikreglur. Þá hefur svigrúm fólks og fyrirtækja breyst og aukist svo um munar, þótt á okkur dynji endalaust reglugerðarfargan frá Evrópu.“
En hann varaði við því að um leið og stjórnmálamennirnir hyrfu af vettvangi ryðjist fyrirtækin inn í tómarúmið og þegar leikreglurnar vanti þá megi reikna með því að menn olnbogi sig áfram af töluverðri hörku. Davíð hélt áfram:
„Þess vegna mega stjórnmálamenn ekki heykjast á því að setja viðskiptalífinu heilbrigðar leikreglur þannig að enginn einn, tveir eða þrír aðilar geti náð yfirburðastöðu og drepið allt annað í dróma.“
Þessi varnaðarorð enduróma innbyggða varfærni Davíðs gagnvart viðskiptalífinu.
Fleiri þættir af Alltaf til hægri - Óli Björn
- Villigötur valdsins29. september 2026
- Nei við tollabandalag - já við heiminum öllum26. ágúst 2026
- Baráttuaðferðir í stjórnmáladeilum16. ágúst 2026
- Tímasprengja sem ógnar stöðugleika og lífskjörum í ESB18. júlí 2026
- Að selja Ísland fokdýrt er eina markmiðið sem er ljóst1. júlí 2026
- Pólitískt orðaverkstæði27. maí 2026






