Villigötur valdsins

· Pólitík

Almenna bókafélagið gaf fyrir nokkru út bókina Villigötur valdsins - Til varnar frelsinu gegn miðstýringu, ríkisafskiptum og rétthugsun. Þetta er sjöunda bókin mín og er ádeila á útþenslu ríkisins og pólitískan rétttrúnað en um leið persónulegur vegvísir að hugsjónum hægri manns sem hafnar hugmyndafræði ríkishyggjunnar sem nýtur velvildar í öllum stjórnmálaflokkum. Of mörgum finnst þægilegra að setja hugmyndafræðina ofan í skúffu og telja sjálfum sér trú um að hægt sé að leysa hvers manns vanda á grunni ríkishyggju.
Í Villigötum valdsins hvet ég hægri menn til að setja hugmyndabaráttuna í forgang – með áherslu á sjálfstæði landsins, frjáls viðskipti og frelsi einstaklingsins. Ég leitast við að færa rök fyrir því að lifandi og opið samfélag verði ekki „hannað“ af stjórnmála- og embættismönnum. Tilgangur ríkisvaldsins sé ekki að endurskapa mannlegt eðli heldur að tryggja að hver og einn fái að lifa lífinu á sínum eigin forsendum – fái að vera eins og hann er – án þess að valda öðrum skaða.
Í þessum þætti er farið yfir bókina.

Fleiri þættir af Alltaf til hægri - Óli Björn