Baráttuaðferðir í stjórnmáladeilum
Á árs afmæli lýðveldisins 17. júní 1945 flutti Bjarni Benediktsson (1908–1970) ræðu sem á erindi við okkur í dag ekki síður en fyrir 81 ári. Stjórnmálamenn samtímans gætu mikið lært en ekki síður við öll sem með einum eða öðrum hætti tökum þátt í opinberri umræðu, hvort heldur er í blaðagreinum, í kommentakerfum netmiðla eða með sleggjudómum á samfélagsmiðlum.
Bjarni varaði sérstaklega við dómhörku í opinberri umræðu. Stjórnmálamenn grafi með henni, hver og einn á víxl og sameiginlega, undan stöðu sinni í vitund almennings. Dómharkan sé átakanlegt vitni um þröngsýni og skort á víðsýni. Hún sé merki sjálfsbirkingshroka sem sé upp yfir það hafinn að læra af öðrum. Og stjórnmálamennirnir eru ekki þeir einu sem glíma við vanda dómhörku og yfirlætis.






