Pólitískt orðaverkstæði
Orð og skilgreiningar skipta máli. Þetta vita snjallir vinstri sinnaðir hugsjónamenn betur en flestir aðrir og þess vegna hafa þeir lagt áherslu á að breyta merkingu orða eða hreinlega smíða ný orð og orðasambönd.
George Orwell varaði við því að sannleikurinn yrði fórnarlamb þegar tungumálið er misnotað. Í ritgerð sem hann birti árið 1946, „Stjórnmál og enska tungan“, hélt hann því fram að villandi málfar væri notað til að fela óþægilegar staðreyndir. Tungutak sé hannað til að láta lygar hljóma sannar og gefa vindhönum yfirbragð festu. Málfar þeirra sem berjast fyrir ákveðinni hugmyndafræði sé menguð af útúrsnúningi og óskýrleika. Mesti óvinur tungumálsins sé óskýrleiki. Þegar gjá myndast á milli raunverulegra og yfirlýstra markmiða nota menn löng orð og útvötnuð orðatiltæki, eins og smokkfiskur sem sprautar út bleki. Og skattahækkanir verða aðhald á tekjuhlið.
Tungutak stjórnmálamanna, álitsgjafa og rithöfunda verður samsett af skrauthvörfum (stílbragð þar sem fínlegra orð er notað í stað þess sem þykir dónalegt, neikvætt eða illkvittið), útúrsnúningum og þokukenndri merkingu.
Fleiri þættir af Alltaf til hægri - Óli Björn
- Villigötur valdsins29. september 2026
- Nei við tollabandalag - já við heiminum öllum26. ágúst 2026
- Baráttuaðferðir í stjórnmáladeilum16. ágúst 2026
- Tímasprengja sem ógnar stöðugleika og lífskjörum í ESB18. júlí 2026
- Að selja Ísland fokdýrt er eina markmiðið sem er ljóst1. júlí 2026
- Sveiflan til hægri20. maí 2026






