Kerfisbundið niðurrif borgaralegra réttinda

· Pólitík

Hafi einhver efast um eindreginn ásetning kínverska kommúnistaflokksins að virða að vettugi almenn mannréttindi þá hlýtur efinn að hafa horfið eftir að 20 ára fangelsisdómur var kveðinn upp yfir Jimmy Lai, 78 ára útgefanda og stofnanda dagblaðsins Apple Daily. Dómurinn jafngildir lífstíðardómi.
Jimmy Lai, sem er einn þekktasti baráttumaður mannréttinda í Hong Kong, hefur setið í fangelsi í rúm fimm ár eða frá því hann var handtekinn í árslok 2020 á grundvelli sérstakra þjóðaröryggislaga sem kínverska ógnarstjórnin setti eftir víðtæk mótmæli almennings í Hong Kong.
Dómurinn er birtingarmynd kerfisbundins niðurrifs borgaralegra réttinda í Hong Kong.

Fleiri þættir af Alltaf til hægri - Óli Björn