2. Steinþór Helgi: Ég vildi bara opna bar
Steinþór Helgi Arnsteinsson hefur komið víða við í íslensku skemmti-, tónlistar- og fjölmiðlalífi. Hann hefur starfað í fjölmiðlum, verið umboðsmaður listamanna, haldið tónleika og sinnt viðburðastjórnun hjá CCP áður en hann hellti sér út í veitingarekstur.
Í þessum þætti af Eftirvaktinni fer Steinþór yfir tilurð Röntgens, fyrstu árin í rekstri, höggið sem fylgdi kórónuveirufaraldrinum og hvernig staðurinn náði að festa sig í sessi í miðbæ Reykjavíkur. Hann ræðir líka Skreið, Bullseye, skemmtanabransann, rekstrarumhverfið og áfengisgjöldin sem hann segir komin langt úr hófi.
Þáttur um barinn sem átti bara að vera bar, lífið á bak við tjöldin í miðbænum og spurninguna um hver taki í raun stærsta hlutann þegar bjórinn kostar 1.800 krónur.
Fleiri þættir af Eftirvaktin
- 9. Oddný Ingólfsdóttir - Frá eldhúsinu í fremstu röð19. ágúst 2026
- 8. Sindri Guðbrandur Sigurðsson: Líf eins fremsta kokks Íslands8. ágúst 2026
- 7. Halldór Gunnar Pálsson: Lét sannfæringuna ráða og brekkan söng með28. júlí 2026
- 6. Bjórinn, bransinn og Tenerife – Níels Hafsteinsson25. júlí 2026
- 5. Saga Kaffibarsins –Litla rauða húsið sem mótaði Reykjavík18. júlí 2026
- 4. Vantar Reykjavík alvöru „dinner & a show“?12. júlí 2026
