31. Gervigreind og Heimsendir - Stefán Þór Þorgeirsson
Þátturinn er í boð chatgptnamskeid.is & hbhf.is.
Í þessum samstarfsþætti með HEIMSENDA tekur Stefán Atli á móti gamla æskuvini sínum Stefáni Þór Þorgeirssyni — leikara, leiðsögumanni og hlaðvarpsstjóra Heimsenda. Leiðir þeirra lágu fyrst saman þegar þeir voru tíu ára gamlir og gerðu stuttmyndir undir merkjum M5 Studios í Flataskóla.Þeir ræða hvernig leiklistin og Japan mótuðu Stefán Þór, leikritið hans „Fyrirlestur um gervigreind“ sem sýnt var 13 sinnum, og hvað það felur í sér að vera bjartsýnn á framtíð gervigreindar. Umræðan er víðtæk og spennir allt frá bókum Harari og Kevins Kelly til sviðsmynda um heimsenda. Þá ræða þeir listir í markaðshagkerfi, sjálfkeyrandi Tesla-bíla og velta því fyrir sér hvort gervigreindin muni taka yfir bankakerfið árið 2030 — og hvort við myndum þá ekki bara fara í leikhús eins og venjulega.
Fleiri þættir af Gervigreindarklúbburinn
- 52. „Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður Eiríksson um AI og framtíð tónlistar6. október 2026
- 51. Krissi Haff: Þú þarft ekki alltaf pepp – stundum bara knús29. september 2026
- 50. Villi Neto - „Ég er í meðvitaðri uppreisn gegn gervigreind“22. september 2026
- 49. Frá CCP til Star Wars: Ferill Sigurlínu Ingvarsdóttur17. september 2026
- 48. „Þá er sálin alveg farin“ – Háski um gervigreind í tónlist10. september 2026
- 47. Er gervigreind stærsta siðferðilega áskorun samtímans? - Ketill Berg Magnússon8. september 2026






