49. Frá CCP til Star Wars: Ferill Sigurlínu Ingvarsdóttur
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.is
Hvað þarf til að stýra einu stærsta tölvuleikjaverkefni heims — og hvernig veit fjárfestir hvaða leikjahugmynd á möguleika á að slá í gegn?
Sigurlína Ingvarsdóttir hefur starfað við tölvuleikjagerð í tæp tuttugu ár. Hún hóf ferilinn hjá CCP, vann að The Division hjá Ubisoft og stýrði framleiðslu Star Wars Battlefront hjá EA DICE. Í dag fjárfestir hún í tölvuleikjafyrirtækjum á fyrstu stigum hjá Behold Ventures.
Í þættinum ræða Stefán Atli og Sigurlína meðal annars:
Pressuna sem fylgdi því að stýra Star Wars Battlefront.
Hvernig verkefnið fór úr þremur starfsmönnum og einu PowerPoint-skjali í um 120 manna teymi.
Hvað einkennir sterk skapandi teymi.
Hvort gervigreind muni efla sköpun eða fylla heiminn af „AI-sloppi“.
Rétt listamanna til samþykkis og greiðslu þegar verk þeirra eru notuð til að þjálfa gervigreind.
Hvaða rauðu flögg Sigurlína sér þegar frumkvöðlar nota gervigreind.
Hvað fjárfestar vilja raunverulega sjá í kynningu.
Hvernig TikTok, streymarar og samfélagsmiðlar geta ráðið úrslitum um velgengni tölvuleikja.
Framtíð sýndarveruleika og hættuna á að við notum stafræna heima til að flýja raunveruleikann.
Hlustaðu á einlægt og fróðlegt samtal við eina reynslumestu konu Íslands í alþjóðlegum tölvuleikjaiðnaði.
Fylgdu Gervigreindarklúbbnum þar sem þú hlustar og deildu þættinum með einhverjum sem hefur áhuga á tölvuleikjum, nýsköpun eða framtíð gervigreindar.
Fleiri þættir af Gervigreindarklúbburinn
- 52. „Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður Eiríksson um AI og framtíð tónlistar6. október 2026
- 51. Krissi Haff: Þú þarft ekki alltaf pepp – stundum bara knús29. september 2026
- 50. Villi Neto - „Ég er í meðvitaðri uppreisn gegn gervigreind“22. september 2026
- 48. „Þá er sálin alveg farin“ – Háski um gervigreind í tónlist10. september 2026
- 47. Er gervigreind stærsta siðferðilega áskorun samtímans? - Ketill Berg Magnússon8. september 2026
- 46. Getur gervigreind verið fyndin? – Hugleikur Dagsson1. september 2026






