17. Gervigreind og Miðeind (máltækni) - Linda Heimisdóttir
Þátturinn er í boði HBHF.is – Bílaleigu Akureyrar og ChatGPTnamskeid.is.
Í þessum þætti spjallar Stefán við Lindu Heimisdóttur, framkvæmdastjóra Miðeindar – stærsta máltæknifyrirtækis Íslands. Linda fer yfir ferðalag sitt frá málvísindum og doktorsnámi í Cornell yfir í það að leiða fyrirtæki sem hefur mótað framtíð íslenskrar máltækni. Hún útskýrir hvernig Miðeind þróar vörur eins og Málstað, býr til öfluga málrýni, þýðingarvélar, talgreiningu og hýsir Snöru – stærsta safn rafrænna orðabóka fyrir íslensku.
Við ræðum einnig stórar sögur: heimsókn íslensku sendinefndarinnar til OpenAI áður en ChatGPT kom út, hvernig Miðeind hjálpaði OpenAI að fínstilla íslensku í GPT-4 með viðgjafarnámi og hvernig fyrirtækið þróaði íslenska stigatöflu fyrir stór málílíkön. Linda talar opinskátt um muninn á GPT-4 og GPT-5, styrkleika Gemini og hvaða líkan stendur sig raunverulega best í íslensku.
Fleiri þættir af Gervigreindarklúbburinn
- 52. „Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður Eiríksson um AI og framtíð tónlistar6. október 2026
- 51. Krissi Haff: Þú þarft ekki alltaf pepp – stundum bara knús29. september 2026
- 50. Villi Neto - „Ég er í meðvitaðri uppreisn gegn gervigreind“22. september 2026
- 49. Frá CCP til Star Wars: Ferill Sigurlínu Ingvarsdóttur17. september 2026
- 48. „Þá er sálin alveg farin“ – Háski um gervigreind í tónlist10. september 2026
- 47. Er gervigreind stærsta siðferðilega áskorun samtímans? - Ketill Berg Magnússon8. september 2026






