38. Gervigreind og langtímahugsun - Hlöðver hjá APRÓ
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is
Í þessum þætti af Gervigreindarklúbbnum ræðir Stefán við Hlöðver, framkvæmdastjóra hjá APRÓ, um stöðu gervigreindar á Íslandi, raunverulegt virði tækninnar og hvers vegna fyrirtæki þurfa að hugsa stærra en bara að nota AI til að skrifa tölvupósta eða taka saman texta.
Hlöðver segir frá því hvernig APRÓ er að byggja upp nútímalegt upplýsingatæknifyrirtæki með áherslu á hugbúnaðarþróun, skýjaþjónustu, gagnagrunna, DevOps og gervigreind. Hann ræðir líka hvers vegna mörg fyrirtæki eru enn föst í „hype-inu“ og ná ekki mælanlegum árangri — ekki vegna þess að tæknin sé ekki nógu góð, heldur vegna þess að fólk, ferlar og viðskiptasamhengi eru ekki nægilega vel undirbúin.
Í þættinum er farið yfir:
Af hverju fyrirtæki ættu að byrja á fólkinu og hæfninni, ekki tækninni sjálfri
Hvernig gögn, verkvit og „business context“ skipta lykilmáli í AI-verkefnum
Muninn á því að nota gervigreind í smáverkefni og að endurhugsa heilu ferlana
Hvers vegna lögfræði, sjálfvirknivæðing og þjónustuferlar gætu breyst mikið á næstu árum
Hvernig Ísland stendur gagnvart gervigreind og hvað vantar í endurmenntun
Hættuna á skugganotkun gervigreindar innan fyrirtækja
Hvað APRÓ vill gera með AI Summit Iceland og samtalið um gervigreind í atvinnulífinu
Lykilskilaboð Hlöðvers eru skýr: hugsa stærra, byrja smærra og skala hratt þegar eitthvað virkar.
Fleiri þættir af Gervigreindarklúbburinn
- 52. „Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður Eiríksson um AI og framtíð tónlistar6. október 2026
- 51. Krissi Haff: Þú þarft ekki alltaf pepp – stundum bara knús29. september 2026
- 50. Villi Neto - „Ég er í meðvitaðri uppreisn gegn gervigreind“22. september 2026
- 49. Frá CCP til Star Wars: Ferill Sigurlínu Ingvarsdóttur17. september 2026
- 48. „Þá er sálin alveg farin“ – Háski um gervigreind í tónlist10. september 2026
- 47. Er gervigreind stærsta siðferðilega áskorun samtímans? - Ketill Berg Magnússon8. september 2026






