43. Helgi Hrafn – Er gervigreindin farin að hugsa fyrir okkur?
Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og Akademias.is
Er gervigreindin að hjálpa okkur að hugsa — eða er hún smám saman farin að hugsa fyrir okkur?
Helgi Hrafn Gunnarsson, forritari og fyrrverandi þingmaður Pírata, mætir í Gervigreindarklúbbinn og ræðir af hreinskilni um gervigreind, gagnrýna hugsun, persónuvernd og framtíð samfélagsins.
Í þættinum ræðum við meðal annars:
Af hverju Helgi telur okkur vera „hvergi nærri AGI“
Hvort gervigreind hefði orðið til án höfundarréttarbrota
Hvernig djúpfalsanir geta ógnað lýðræði og kosningum
Hvort hægt sé að hætta á Facebook án þess að detta út úr samfélaginu
Af hverju það er enginn svindlkóði fram hjá sjálfstæðri hugsun
Helgi varar við því að gervigreind sé mikill „people pleaser“ sem geti styrkt rangar hugmyndir og gefið okkur svörin sem við viljum heyra. Stærsta hættan sé því ef til vill ekki tæknin sjálf — heldur að við hættum að spyrja spurninga.
🎧 Hlustaðu á þáttinn og fylgdu Gervigreindarklúbbnum á Spotify til að missa ekki af næsta þætti.
Fleiri þættir af Gervigreindarklúbburinn
- 52. „Prompt er ekki sköpun“ – Þormóður Eiríksson um AI og framtíð tónlistar6. október 2026
- 51. Krissi Haff: Þú þarft ekki alltaf pepp – stundum bara knús29. september 2026
- 50. Villi Neto - „Ég er í meðvitaðri uppreisn gegn gervigreind“22. september 2026
- 49. Frá CCP til Star Wars: Ferill Sigurlínu Ingvarsdóttur17. september 2026
- 48. „Þá er sálin alveg farin“ – Háski um gervigreind í tónlist10. september 2026
- 47. Er gervigreind stærsta siðferðilega áskorun samtímans? - Ketill Berg Magnússon8. september 2026






