46. Getur gervigreind verið fyndin? – Hugleikur Dagsson

· Tækni

Þátturinn er í boði ChatGPTnamskeid.is, eignaskanni.is og akademias.is.
Getur gervigreind orðið raunverulega fyndin — eða þarf hún fyrst að skilja sársauka, reynslu og mannlega bresti?
Gestur þáttarins er Hugleikur Dagsson, teiknari, rithöfundur og grínisti sem hefur í meira en tvo áratugi fengið Íslendinga til að hlæja, hneykslast og velta því fyrir sér hvort þeir hafi yfirhöfuð mátt hlæja.
Í þættinum ræðum við meðal annars:

Hvað gerðist þegar Hugleikur lét gervigreind semja brandara í sínum stíl

Hvort gervigreind geti skapað list eða sé aðeins verkfæri listamannsins

Óttann við að gervigreind taki störf og geri menninguna einsleitari

Fyrsta brandara Hugleiks og hvernig hugmyndirnar verða til

Hvers vegna hann tók sér pásu frá uppistandi

Vélmenni framtíðarinnar og drauminn um fyndið ellihjúkrunarvélmenni

ChatGPT mætir einnig óvænt í þáttinn, reynir að vera fyndið og fær hreinskilið svar frá Hugleiki.
Hlustaðu á Gervigreindarklúbbinn og fylgdu þættinum þar sem þú hlustar á hlaðvörp.

Gervigreindarklúbburinn

Úr hlaðvarpinu

Gervigreindarklúbburinn

Stefán Atli

Allir þættir

Fleiri þættir af Gervigreindarklúbburinn