Tónheilun og tíðni - Getur verið að hljóð hafi meiri áhrif á okkur en við gerum okkur grein fyrir? – Vala Sólrún Gestsdóttir
🎙️ Geta hljóð, tíðni og titringur haft meiri áhrif á líkamlega og andlega heilsu okkar en við gerum okkur grein fyrir?
Í þessum þætti fáum við til okkar Völu Sólrúnu Gestsdóttur, víóluleikara, tónskáld og tónheilara, og eigum við hana áhugavert og víðfeðmt samtal um tónheilun, mátt hljóðsins og hvernig mismunandi tíðni og titringur geta haft áhrif á líkama og huga.
Vala Sólrún hefur víðtæka menntun á sviði tónlistar og hljóðs. Hún lauk BA- og meistaragráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2013, nam hljóðfræði og hljóðupptökur við SAE í London og síðar tónheilun hjá Acutonics í Englandi. Hún hefur jafnframt aflað sér þekkingar á ýmsum sviðum heilsu og vellíðanar, meðal annars í heilun, flotmeðferð, sauna-gusu, andlits- og svæðanuddi, auk þess sem hún er jógakennari. Í dag er hún einnig sendiherra MEINL Sonic Energy, sem framleiðir hljóðfæri fyrir tónheilun.
Kynnin af tónheilun urðu Völu mikil tímamót. Hún lýsir því hvernig hún fann nýjan lífskraft, uppgötvaði áður dulda hlið á sjálfri sér og öðlaðist nýjan tilgang í lífinu. Sú reynsla varð henni hvatning til að miðla áfram því sem hún hafði sjálf upplifað og hefur tónheilun og orkuvinna síðan þróast samhliða tónsköpun hennar.
Við þekkjum flest hvernig tónlist getur haft djúp áhrif á okkur, kallað fram sterkar tilfinningar, veitt gleði eða fært okkur ró. En geta hljóð og mismunandi tíðnir haft enn víðtækari áhrif? Geta þau haft áhrif á taugakerfið, dregið úr streitu og hjálpað okkur að finna betra jafnvægi?
Meðal þess sem við ræðum í þættinum:
🔸 Hvað er tónheilun og á hvaða hugmyndafræði byggist hún?
🔸 Tíðni og titringur – hvernig geta mismunandi hljóð haft áhrif á líkama og huga?
🔸 Áhrif hljóðs á heilann, taugakerfið og streituviðbrögð líkamans.
🔸 Hvernig tónheilun getur stuðlað að djúpri slökun og innri ró.
🔸 Tengsl hljóðs við svefn, tilfinningar og líkamlega spennu.
🔸 Mismunandi tíðnir – við ræðum hvernig tilfinningar hafa mismunandi tíðni og hugmyndafræðina að hver orkustöð líkamans tengist ákveðinni tíðni og nærist á tilteknum hljóðtitringi.
🔸 Áhrif tíðni og titrings á vatn og sand – við ræðum tilraunir þar sem hljóðbylgjur mynda heillandi rúmfræðileg mynstur í sandi og mismunandi bylgjumynstur á yfirborði vatns. Hvað segja þessi fyrirbæri okkur um áhrif hljóðs og titrings á efni?
🔸 Hljóðfærin sem notuð eru við tónheilun og hvað einkennir þau.
🔸 Persónuleg vegferð Völu og hvernig tónheilun breytti sýn hennar á lífið.
🔸 Hvernig við getum nýtt hljóð og tónlist meðvitað til að auka vellíðan í daglegu lífi.
Við förum um víðan völl í fróðlegu og einlægu samtali um tónlist, tíðni, titring, lífsorku og þær fjölbreyttu leiðir sem fólk leitar til að efla heilsu sína og vellíðan.
Getur verið að hljóð hafi meiri áhrif á okkur en við gerum okkur grein fyrir?
❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins
🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is
🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is
🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is
🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is
Fleiri þættir af Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms
- Máttur kjötsoðsins – Getur það hjálpað við bólgum og meltingarsjúkdómum? | Melting | Histamín | Omega-3 | Innmatur | Salt | Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir16. nóvember 2026
- Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira2. nóvember 2026
- Áhrif þunglyndislyfja á fósturþroska - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki26. október 2026
- Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum19. október 2026
- Höfum við einblínt um of á hitaeiningar? Hvað gerist í raun inni í líkamanum? | Insúlín, hvatberar og fitubrennsla | Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir13. október 2026
- Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein5. október 2026
