Máttur kjötsoðsins – Getur það hjálpað við bólgum og meltingarsjúkdómum? | Melting | Histamín | Omega-3 | Innmatur | Salt | Kolbrún Björnsdóttir grasalæknir
🍲 Getur gamla og góða kjötsoðið verið lykill að betri meltingu og minni bólgum?
Í þessum fróðlega þætti fáum við aftur til okkar Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni, eða Kollu, eins og við köllum hana.
🌿 Kolla hefur lengi lagt áherslu á mikilvægi næringar fyrir góða meltingu og segir okkur frá því hvernig hún notar kjötsoð og beinasoð til að hjálpa fólki sem glímir við bólgur og meltingarsjúkdóma, meðal annars Crohns-sjúkdóm. Við ræðum næringarefnin sem leynast í góðu soði, hvernig þau kunna að styðja við meltingarveginn og hvers vegna Kolla telur soðið mikilvægan þátt í sinni nálgun.
🥣 Kolla kennir okkur jafnframt að útbúa gott, næringarríkt kjöt- og beinasoð frá grunni og deilir ýmsum góðum ráðum um hráefni og matreiðslu.
Í þættinum ræðum við einnig:
🌱 Histamín – hvað er histamín, í hvaða mat er mikið af því, hvers vegna getur það valdið óþægindum og hvað þarf að hafa í huga við gerð og geymslu kjötsoðs?
🐟 Omega-3 fitusýrur – mikilvægi þeirra fyrir líkamann og hlutverk þeirra í bólguferlum.
🧂 Salt – hvaða salt er best að nota, hver er munurinn á mismunandi tegundum og hvers vegna skiptir það máli?
🥩 ❤️ Innmatur – hvers vegna ættum við að borða meira af lifur, hjörtum og nýrum og hvernig næringarefni í innmat tengjast starfsemi líffæra líkamans
🌿 Gamlar matarhefðir – höfum við gleymt að nýta einhverja næringarríkustu hluta dýrsins?
👩🍳 Góðar uppskriftir – Kolla deilir með okkur frábærri uppskrift að heimagerðri lifrarkæfu og kennir okkur hvernig best er að matreiða hjörtu.
💚 Verið með okkur í áhugaverðu og fróðlegu spjalli við Kollu um kjötsoð, beinasoð, meltingarheilsu og hvernig maturinn sem við borðum getur haft áhrif á líðan okkar og heilsu.
❤️ Samstarfsaðilar Heilsuhlaðvarpsins
🥩 Kjarnafæði – íslenskar kjötvörur og gömlu góðu uppskriftirnar, meðal annars lifrarpylsa og sviðasulta án óþarfa aukaefna - kjarnafaedi.is
🛒 Nettó – frábær tilboð alla daga - mikið úrval af lífrænum vörum og hollustuvörum - netto.is
🥛 Bíóbú – íslenskar lífrænar mjólkurvörur með meira af góðum fitusýrum - búskapur sem setur heilsu lífríkis jarðar í fyrsta sætið - biobu.is
🌱 Greenfit – heilsumælingar, rauðljós, súrefnisklefi, kuldaklefi með meiru - greenfit.is
Fleiri þættir af Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms
- Tónheilun og tíðni - Getur verið að hljóð hafi meiri áhrif á okkur en við gerum okkur grein fyrir? – Vala Sólrún Gestsdóttir9. nóvember 2026
- Auður Elísabet Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur um IFS, okkar innri parta, pendúl taugakerfisins, sögu Þráins Þorvaldssonar og ýmislegt fleira2. nóvember 2026
- Áhrif þunglyndislyfja á fósturþroska - Þórður Þórarinn Þórðarson nýburalæknir. Ný íslensk rannsókn - Áhrif á nýbura | Öndunarerfiðleikar | Upplýst samþykki26. október 2026
- Að hámarka heilsuna | Elvar og Hilmar Leonardssynir | Læknir og sjúkraþjálfari fara sínar eigin leiðir og ögra hefðbundnum hugmyndum19. október 2026
- Höfum við einblínt um of á hitaeiningar? Hvað gerist í raun inni í líkamanum? | Insúlín, hvatberar og fitubrennsla | Kristján Þór Gunnarsson heimilislæknir13. október 2026
- Kannabis til lækninga - Vísindin, þúsundir sjúklinga og reynslan af notkun kannabis í meðferð erfiðra sjúkdóma | Dr. Bonni Goldstein5. október 2026
