Blaðamenn drepnir, Gaza og Grænland
Samtökin Blaðamenn án landamæra (Reporters sans frontières) segja að 67 blaðamenn, hið minnsta, hafi verið drepnir á síðasta ári, Flestir þeirra féllu á Gaza fyrir hendi Ísraelshers. Bandaríkjastjórn hefur lýst því yfir að annað þrep vopnahléssamkomulags á Gaza hafi tekið gildi. Samkvæmt því eiga Hamas-samtökin að afvopnast og Ísraelsher að draga sig enn frekar frá Gaza. Þá skal alþjóðleg nefnd taka við stjórn á Gaza og fjölþjóðlegt friðargæslulið sjá þar um öryggi. Í lok Heimsgluggans var rætt um fund utanríkisráðherra Danmerkur og Grænlands með bandarískum ráðamönnum um Grænland. Ákveðið var að viðræðum yrði haldið áfram en Bandaríkjaforseti heldur til streitu kröfum um bandarísk yfirráð á Grænlandi.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026