„Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“
Baldur Þórhallsson prófessor og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur ræddu breytt öryggisumhverfi frá sjónarhóli smáríkja í Heimsglugganum. Baldur líkir Bandaríkjaforseta við mann sem beitir fjölskyldu sína ofbeldi.
Á föstudag verður fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar og Rannsóknaseturs um smáríki við Háskóla Íslands. Yfirskrift fundarins: Nýjar ógnir, nýjar áherslur: Smáríki og breytt öryggisumhverfi Evrópu. Baldur og Vilborg verða í pallborði og ræða þessi mál þar. Þau voru sammála um að Íslendingar komist ekki hjá því að auka útgjöld til varnarmála.
Bogi ræddi einnig um vandræði danska flotans við Grænland þar sem hætt var við eftirlitsferð sem Hvidbjørnen átti að fara í til Grænlands. Ástæðan er að ekki tókst að manna skipið.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- Hótanir Bandaríkjaforseta og kosningabarátta í Svíþjóð20. ágúst 2026