Kúvending í Washington
Heimsglugginn fjallaði að mestu um skyndilega stefnubreytingu Bandaríkjaforseta þegar hann frestaði um þrjá mánuði flestum tollahækkunum. Hlutabréfamarkaðir réttu strax úr kútnum en margir velta fyrir sér hvað hafi valdið kúvendingunni. Flestir hallast að því að verðlækkun bandarískra ríkisskuldabréfa og hærri ávöxtunarkrafa hafi orðið til þess að forsetinn breytti um stefnu.
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu einnig við Boga Ágústsson um nýja stjórn í Þýskalandi og kosningar sem fara fram í Kanada og Ástralíu á næstu vikum.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026