Risagjaldþrot í Svíþjóð, vopnahlé í Úkraínu og óvænt úrslit á Grænlandi
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu að fimmtudagsvenju við Boga Ágústsson um erlend málefni í Heimsglugga vikunnar. Að þessu sinni var rætt um stærsta gjaldþrot í sænskri viðskiptasögu. Northvolt átti að verða lykilfyrirtæki í sókn evrópskra bílaframleiðenda á rafbílamarkaðnum en reksturinn gekk aldrei eins og skyldi. Fyrirtækið er nú gjaldþrota og þrjú þúsund manns í Skellefteå í Norður-Svíþjóð hafa misst vinnuna.
Úkraínumenn hafa fallist á tillögur Donalds Trumps um vopnahlé en Rússar hafa ekki svarað enn. Trump hefur hótað Rússum auknum refsiaðgerðum fallist þeir ekki á vopnahlé.
Úrslit þingkosninganna á Grænlandi komu verulega á óvart, enginn bjóst við því að mið-hægriflokkurinn Demokratiit yrði stærsti flokkurinn. Jens-Frederik Nielsen, leiðtogi flokksins, reynir nú að mynda stjórn. Búist er við að hann reyni að mynda stjórn með IA, sem er lengst til vinstri í grænlenskum stjórnmálum, og hugsanlega einnig með hægriflokknum Atassut.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026