Norræn pólitík og jólalög
Norski Verkamannaflokkurinn er í miklum öldudal um þessar mundir eins og stjórnarflokkar víðar á Norðurlöndum. Framfaraflokkurinn nýtur mests fylgis og þykir tíðindum sæta að hann skuli njóta meiri stuðnings en Høyre sem hefur haft afgerandi forystu á hægri væng norskra stjórnmála. Sænska kosningarannsóknin við háskólann í Gautaborg hefur birt lista yfir mat kjósenda á stjórnmálaleiðtogum frá 1979. Fredrik Reinfeldt, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtogi Moderaterna, fær hæstu einkunn, Jimmie Åkesson, formaður Svíþjóðardemókrata, er á botninum. Aðeins einn núverandi leiðtogi kemst á topp 10 listann, Magdalena Anderson, formaður Jafnaðarmanna.
Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu einnig við Boga Ágústsson um annan sænskættaðan Anderson. Bandaríska tónskáldið Leroy Anderson sem samdi eitt vinsælasta jólalag allra tíma, Sleigh Ride. Bogi upplýsti að Leroy Anderson hefði starfað á fréttastofu Útvarpsins í síðari heimsstyrjöldinni. Hann var mikill tungumálamaður og hafði meðal annars lagt stund á forn-íslenskunám í Harvard-háskóla. Þegar hann var kallaður til herþjónustu 1942 var hann settur í gagnnjósnadeild hersins vegna tungumálaþekkingar sinnar. Hann var sendur til Íslands og hafði það hlutverk að sjá til þess að íslenskir fjölmiðlar birtu ekki fréttir sem gætu orðið Þjóðverjum til gagns. Það er orðin hefð í síðasta Heimsglugga fyrir jól að leika Fairytale of New York með írsku sveitinni Pogues. Við heyrðum brot af flutningi sveitarinnar við útför Shane MacGowans, söngvara Pogues, í desember í fyrra. Svo var upphafleg útgáfa lagsins leikin í heild.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026