Telur hvorki Rússa né Úkraínumenn geta sigrað í stríðinu
Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur, var gestur Heimsgluggans. Hann og Bogi Ágústsson ræddu stríðið í Úkraínu, harðar loftárásir Rússa, sókn Úkraínumanna inn í Kúrsk-hérað í Rússlandi og breytingar á ríkisstjórn Úkraínu. Valur telur ólíklegt að stríðið vinnist á vígvellinum, það endi líklega með vopnahléi og Úkraínumenn þurfi að sætta sig við að Rússar ráði því landi sem þeir hafi hernumið.
Heimsglugginn hófst á spjalli Björns Þórs Sigbjörnssonar og Boga um afsögn Tobiasar Billströms, utanríkisráðherra Svíþjóðar, og umfjöllun um bresk stjórnmál. Þar er barátta hafin um hver tekur við af Rishi Sunak sem leiðtogi Íhaldsflokksins og stjórn Verkamannaflokksins hyggst leggja fram frumvarp um að erfðalávarðar fái ekki lengur að sitja í lávarðadeild þingsins.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026