Óánægðir Grænlendingar, kosningabarátta í Bretlandi og Mama Cass
Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu óánægju Grænlendinga með stöðu sína í norrænu samstarfi. Múte B. Egede, formanni landsstjórnar Grænlands, var ekki boðið á fund forsætisráðherra Norðurlandanna í Stokkhólmi. Grænlendingar og Færeyingar hafa óskað eftir sjálfstæðri aðild að Norðurlandaráði en það strandar á því að löndin eru ekki sjálfstæð fullvalda ríki.
Einnig var rætt um kosningabaráttuna á Bretlandi og að lokum var söngkonan Mama Cass til umræðu. Hún var þekktust fyrir veru sína í The Mamas and the Papas. 50 ár eru liðin frá andláti hennar og lengi hafa verið sögusagnir um að hún hafi kafnað er hún var að borða samloku. Staðreyndin er hins vegar að hún fékk hjartaáfall.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026