Svíþjóðardemókratar staðnir að drullukasti, aðskilnaðarsinnar tapa í Katalóníu
Svíþjóðardemókratarnir hafa á laun rekið ,,tröllaverksmiðjur" á netinu sem dreifðu áróðri gegn innflytjendum og óhróðri um stjórnmálamenn í öðrum flokkum. Svíþjóðardemókratarnir styðja minnihlutastjórn Ulfs Kristerssons en hafa samt á laun kastað skít í forystumenn ríkisstjórnarflokkanna. Þeir hafa brugðist ókvæða við en ekki er talið að stjórnin falli vegna málsins. Þetta ræddu Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson í fyrri hluta Heimsgluggans.
Í síðari hlutanum var rætt við í Jóhann Hlíðar Harðarson, fyrrverandi fréttamann RÚV sem býr á Spáni, um stjórnmál í Katalóníu. Jóhann segir að þau séu eins og flókin og spennandi reyfari. Aðskilnaðarsinnar töpuðu í héraðsþingskosningum um síðustu helgi og það kann að hafa talsverðar afleiðingar.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026