Stórkostlegt réttarfarshneyksli í Bretlandi, meira en 700 saklausir dæmdir vegna tölvugalla
Björn Þór Sigbjörnsson ræddi við Boga Ágústsson um eitt mesta réttarfarshneyksli síðari ára í Bretlandi. Síðustu daga hefur allt verið á öðrum endanum í Bretlandi vegna sjónvarpsþátta um það sem kallað hefur verið alvarlegasta hneyskli í breskri réttarfarssögu á síðari árum, þar sem hundruð saklausra voru dæmd fyrir fjárdrátt og þjófnað. Þáttaröðin nefnist Mr Bates vs. The Post Office. Þar er fjallað rangar ákærur og sakfellingu meira en 700 útibússtjóra í breskum pósthúsum. Fólk missti æruna, margir urðu gjaldþrota, sumir fóru í fangelsi og fjórir sviptu sig lífi. Seinna kom í ljós að það sem marga póststarfsmenn grunaði var rétt. Bókhaldskerfið sem pósturinn notaði var gallað. Þetta hefur verið vitað í allnokkurn tíma en eins og einn útibússtjóranna, Michael Rudkin, sagði var það mikil kaldhæðni að það hefði ekki verið fyrr en sjónvarpsstöðin ITV sýndi þættina um hátíðarnar að allur almenningur áttaði sig á hversu umfangsmikið og alvarlegt málið var, það hefði verið reynt að vekja athygli á ranglætinu í 20 ár.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026