Grænland, Trump og Leó páfi og minningarhátíð gyðinga
Nýjar stjórnir hafa tekið við í Færeyjum og á Grænlandi. Múte B. Egede tók við af Vivian Motzfeldt sem utanríkisráðherra og tekst á við ásælni Trumps Bandaríkjaforseta í yfirráð á Grænlandi. Bandaríkjamenn virðast hafa áhuga á að koma upp herstöð í Narsarsuaq syðst á Grænlandi.
Í Færeyjum hafa tveir borgaraflokkar myndað stjórn með Jafnaðarmönnum. Lögmaður er Beinir Johannesen sem tekur við af föðurbróður sínum Aksel V. Johannesen.
Daglega berast fréttir af því að Donald Trump skammi Leó páfa XIV og saki hann um vinstrimennsku, standi á sama þó að Íranir komi sér upp kjarnorkuvopnum og glæpamenn vaði uppi óáreittir.
Í lok Heimsgluggans sagði Bogi Ágústsson frá minningarstund gyðinga vegna helfararinnar og kvaðst hafa fellt tár.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026