Stefnir í afhroð gömlu flokkanna á Englandi
Kosið er í Bretlandi í dag, þingkosningar í Skotlandi og Wales og sveitarstjórnarkosningar víða í Englandi. Þar er Reform, Umbótaflokki Nigels Farage, spáð mikilli fylgisaukningu. Flokkurinn er yst til hægri í breskum stjórnmálum og segja má að Grænir séu lengst til vinstri og þeim er einnig spáð fylgisaukningu. Frjálslyndir demókratar búast við góðum úrslitum en flokkarnir sem einu sinni báru höfuð og herðar yfir aðra breska stjórnmálaflokka mega muna fífil sinn fegri. Þetta eru Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn sem eiga í vök að verjast. Reform og Plaid Cymru, sem vill að Wales verði sjálfstætt ríki í framtíðinni, keppast um að verða stærsti flokkurinn í Senedd, þingi Wales. Verkamannaflokkurinn hefur stjórnað Wales í næstum þrjá áratugi en er spáð þriðja sæti að þessu sinni.
Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, virðist hins vegar eiga góða möguleika á að halda völdum. Sólveig Jónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, og Bogi Ágústsson ræddu um skosk stjórnmál og kosningabaráttuna.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026