„Ég elska verðbólgu…“
Donald Trump er í klípu, hvorki gengur né rekur í tilraunum hans til að gera varanlegt vopnahlé eða friðarsamning við Írana. Árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran hafa haft í för með sér efnahagsörðugleika um víða veröld. Trump viðhafði afar sérstök ummæli er hann sagðist elska verðbólgu sem er bein afleiðing af hækkun olíuverðs. Þetta var til umræðu í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1.
Þar var einnig fjallað um hernaðaruppbyggingu Rússa á vesturlandamærum sínum sem Norðurlönd og Eystrasaltsríkin telja ógna sér.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026