„Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þeir ræddu meðal annars nýlokinn leiðtogafund G7-ríkjanna í Evian í Frakklandi. Þar var eindregnum stuðningi lýst við Úkraínumenn í vörn þeirra gegn innrásarher Rússa. Erlingur telur óheppilegt ef vopnahléssamkomulag Bandaríkjanna og Írans verður kennt við Versali í ljósi þess að friðarsamningarnir eftir fyrri heimsstyrjöld voru gerðir þar og eru af mörgum taldir ein af meginástæðunum fyrir seinni heimsstyrjöldinni.
Erlingur og Bogi ræddu strategíska stöðu Bandaríkjanna og Írans. Margir fréttaskýrendur telja að þrátt fyrir hernaðarlega yfirburði hafi Bandaríkin beðið strategískan ósigur og staða klerkastjórnarinnar á Íran sé á margan hátt sterkari en áður en Bandaríkin og Ísraelsmenn hófu árásir á Íran í febrúarlok í ár.
Þá var rætt um aukakosningarnar til breska þingsins í dag. Andy Burnham reynir að komast á þing þar sem hann hyggst reyna að velta Keir Starmer úr sessi sem leiðtoga Verkamannaflokksins og forsætisráðherra.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026