„Fylgjendur Trumps eins og sértrúarsöfnuður“
Bandarísk stjórnmál voru á dagskrá Heimsgluggans. Sigríður Rut Júlíusdóttir héraðsdómari, Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu stöðu og horfur vestra. Sigríður Rut stundaði framhaldsnám í lögfræði í Bandaríkjunum og fylgist afar vel með stjórnmálum þar í landi.
Þau ræddu meðal annars deilur innan Repúblikanaflokksins, afleiðingar Íransstríðsins, kosningarnar í nóvember, mögulega vinstri sveiflu innan Demókrataflokksins og óvinsældir Trumps forseta. Sigríður Rut segir mögulegt að vinsældir forsetans geti aukist á ný því að mörgu leyti megi líkja fylgjendum Trumps við sértrúarsöfnuð.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026