Hótanir Bandaríkjaforseta og kosningabarátta í Svíþjóð
Bandaríkjaforseti hefur í þessari viku hótað að gera árásir á bandamenn í Óman, fyrirskipað að dregið skuli úr hlut Bandaríkjanna í heræfingum í Suður-Kóreu og kallað einhvern harðsvíraðasta einræðisherra veraldarinnar vin sinn. Þetta bætist ofan á misheppnaða stefnu í Mið-Austurlöndum, árásargjarna tollastefnu, fjandskap við bandamenn, hótanir um yfirtöku Grænlands og allt annað. Trump kvaðst við upphaf seinna kjörtímabils síns ætla að verða boðberi friðar og krafðist þess að fá friðarverðlaun Nóbels. Fréttaskýrandi BBC segir að arfleifð hans gæti orðið eilífðarstríð við Íran.
Í Svíþjóð er allt útlit fyrir ósigur stjórnar hægristjórnar Ulfs Kristerssons í kosningum 13. september. Tíu prósentustiga munur er á fylgi stjórnarinnar og fylgi mið- og vinstriflokka í stjórnarandstöðunni. Fréttaskýrendur segja að engri ríkisstjórn hafi tekist að ná upp svo miklum mun á svona skömmum tíma.
Fleiri þættir af Heimsglugginn
- Allt í hnút á Norður-Írlandi1. október 2026
- Fjallið tók jóðsótt og það fæddist mús24. september 2026
- Framtíð Bretlands, öfugþróun lýðræðis, kosningar og stjórnarmyndun í Sviþjóð17. september 2026
- Refsiaðgerðir vegna landráns, norskir kóngar og sænsk kosningabarátta10. september 2026
- Árásir Rússa, danskir bændur og bresk og sænsk stjórnmál3. september 2026
- „Ástríkur heimilisfaðir breytist í ofbeldismann“27. ágúst 2026