Íslandssagan

Jón Kristinn Einarsson

Saga

Jón Kristinn ræðir við sérfræðinga og leiðir hlustendur í gegnum sögu Íslands og umheimsins. Hlaðvarpið er styrkt af menningarsjóði tengdum nafni Jóhannesar Nordals og er tekið upp í húsnæði Reykjavíkurakademíunnar. Patreon.com/Islandssagan

13. Marteinn Lúter

Jón Kristinn ræðir við Sigurjón Árna Eyjólfsson um Martein Lúter og hugmyndaheim siðbótarmanna.

12. Byltingin að ofan

Jón Kristinn ræðir við Vilborgu Auði Ísleifsdóttur um siðaskiptin, og kenningar hennar um áhrif þeirra á íslenska velferðarkerfið, en einnig þróun mála í Danmörku áður en siðaskiptin bárust til Íslands.

11. Siðaskiptin og verslun

Í fyrsta þætti nýrrar seríu, sem mun fjalla um árnýöld (árin 1500–1800) ræðir Jón Kristinn við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóra og hagfræðiprófessor, um siðaskiptin og utanlandsverslun á Íslandi.

10. Landnám og rostungar

Jón Kristinn ræðir við Bergsvein Birgisson um tengsl rostungsveiða og landnáms Íslands. Lagt er út af bók Bergsveins, Leitin að svarta víkingnum.

9. Klausturhald

Jón Kristinn ræðir við Steinunni Kristjánsdóttur, prófessor í fornleifafræði, um klausturhald á miðöldum.

8. Kristnun Íslands

Jón Kristinn ræðir við Harald Hreinsson, dósent í guðfræði, um kristnun Íslands.

7. Miðaldabókmenntir II

Jón Kristinn ræðir við Sif Ríkharðsdóttur um rómönsk áhrif í íslenskum bókmenntum á miðöldum; riddarasögur, rómönsur og annan rómantískan skáldskap. Patreon.com/Islandssagan

6. Miðaldabókmenntir I

Jón Kristinn ræðir við Ármann Jakobsson um miðaldabókmenntir, eddukvæði, dróttkvæði, Íslendingasögur og ýmislegt fleira. Patreon.com/Islandssagan

5. Landbúnaður á miðöldum

Jón Kristinn ræðir við Árna Daníel Júlíusson um landbúnað á miðöldum. Patreon.com/Islandssagan

4. Utanlandsverslun á miðöldum

Jón Kristinn ræðir við Helga Þorláksson um utanlandsverslun Íslendinga á miðöldum; vaðmál, skreið, þýsku öldina og ensku öldina. Þetta er fyrri þáttur af tveimur um hagsögu Íslands á miðöldum.

Þér gæti líka líkað...