18. Aukið æfingaálag & breyttar áherslur - er næringin að sitja á hakanum?
Sumarið er loksins komið og með því hellist hreyfigleðin yfirmarga sem ætla heldur betur að rífa sig í gang. En þótt margt sé jákvætt við það er líka að ýmsu að huga í þessu samhengi.
Í þessum þætti förum yfir algengustu mistökin sem fólk gerirþegar fólk fer úr því að æfa lítið (eða jafnvel kyrrsetu) og yfir í meira æfingaálag: vanmeta eigið form, elta þá bestu, leita skyndilausna í fæðubótarefnum, óttast kolvetni að óþörfu, og mæta í maraþon án þess að hafa nokkurn tíma prófað orkugel. Við ræðum einnig ofþjálfunarheilkenni og REDs, hvernigá að þekkja einkennin og hvað næringin hefur með málið að gera.
Hlekkinn á 6 vikna netnámskeiðið okkar má finna hér (og viðminnum á kóðann Nutreleat15 fyrir 15% afslátt af skráningargjaldi):
https://www.nutreleat.is/leggdu-grunninn-ad-thinni-ithrottanaeringu
Grafið sem við förum yfir þegar fer að líða á seinni hlutaþáttarins má finna hér:
https://www.mysportscience.com/post/2015/04/10/higher-carbohydrate-intake-reduces-overtraining-symptoms
Ekki gleyma að fylgja þættinum, skilja eftir athugasemd eðagefa einkunn - við viljum endilega heyra hvað þér finnst!
Eins máttu gjarnan tagga okkur á Instagram (@nutreleat) ef þú hlustar á þáttinn eða finnst hann fræðandi og áhugaverður.
Vonum að þú njótir.
- Nutreleat teymið
Fleiri þættir af Íþróttanæring með Nutreleat
- 25. Sigríður Björnsdóttir, innkirtla- & efnaskiptalæknir: Beinmeiðsli, næring og hormón28. september 2026
- 24. Tímabilaskipt næring fyrir íþróttafólk14. september 2026
- 23. Anton Sveinn McKee, fjórfaldur Ólympíufari í sundi31. ágúst 2026
- 22. Heilaskaði í íþróttum & næringartengdar áherslur17. ágúst 2026
- 21. Þegar aginn verður að þráhyggju: Átraskanir í íþróttum3. ágúst 2026
- 20. Kolvetnaneysla & beinheilsa, rannsóknar deep-dive20. júlí 2026
